top of page

LITALAND

Litaland segir frá grunnlitunum, gulum, rauðum og bláum. Að vísu kalla þau sig Gulverja, Rauðingja og Bláverja svo það er betra að hafa þetta rétt. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og til að byrja með eru nú ekki mikil samskipti á milli heimanna enda vill hver litur bara halda sig út af fyrir sig. Hins vegar dregur fljótlega til tíðinda því Bláheimar eru allir að hruni komnir og neyðast Bláungar til að leita á náðir Gulverja í Gulheimum þar sem heimur þeirra virðist vera að þurrkast út og þeir eiga engan samastað. Ekki gengur það áfallalaust fyrir sig og verður spennandi að fylgjast með þeirri framvindu. Í Rauðheimum virðist þó allt vera með felldu og þar undirbúa Rauðingjar komu nýjasta litarins sem er væntanlegur í hópinn fljótlega. Rjóð móðir hans er hins vegar eitthvað treg til að segja frá því hver pabbinn er… Mögulega hefur einhver litablöndun einnig átt sér stað í Rauðheimum…

Sýningin árið 2026 er ný uppfærsla sem tekur ýmsum breytingum. Önnur leikmynd, nýir og breyttir búningar, splúnkuný lög og uppfærð útsetning á eldri lögum og margt fleira. 

Leikstjórn - Sigsteinn Sigurbergsson & Þórunn Lárusdóttir

Höfundur - Anna Bergljót Thorarensen
Höfundar laga -Baldur Ragnarsson, Björn ThorarensenÞórður Gunnar Þorvaldsson og Rósa Ásgeirsdóttir
Höfundur söngtexta - Sævar Sigurgeirsson
Búningar - Aldís DavíðsdóttirÍdris R. Berman og Rósa Ásgeirsdóttir

​Hljóðblöndun: Þórður Gunnar Þorvaldsson

Leikmyndahönnun: Sigsteinn Sigurbergsson & Andrea Ösp Karlsdóttir

Leikendur

Andrea Ösp Karlsdóttir - Bál, Litli Litur, Hafdís

Anna Bergljót Thorarensen - Glódís, Ástrós, Marín
Sumarliði V Snæland Ingimarsson - Geisli, Blær, Hjörtur þjónn
Rósa Ásgeirsdóttir - Rjóð, Aldin, Særún 

Stefán Benedikt Vilhelmsson - Afi gamli, Rósmundur

 

Afleysingar

Þórunn Lárusdóttir - Rjóð, Aldin, Særún

SUMARIÐ
2026

Smelltu hér til að kaupa diskinn!

bottom of page